Í gær voru liðin 70 ár frá því að íslenska kvennalandsliðið í handknattleik lék sinn fyrsta landsleik þegar það mætti Noregi í Osló þann 19. júní 1956. Að því tilefni komu saman fjórir leikmenn úr fyrsta landsliðshópnum, þær Gerða Jónsdóttir, Helga Emilsdóttir, Geirlaug Karlsdóttir og Sigríður Kjartansdóttir og fögnuðu tímamótunum. Fyrir hönd HSÍ heimsótti Guðríður Guðjónsdóttir, formaður landsliðsnefndar kvenna, landsliðskonurnar og færði þeim blóm og minjagripi í tilefni dagsins. Einnig voru viðstaddir fulltrúar frá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands. Leikurinn sem fram fór í Osló þann 19. júní 1956 var liður í undirbúningi fyrir Norðurlandamótið í Finnlandi síðar um sumarið. Spilað var utanhúss á grasi og lauk leiknum með 10-7 sigri Noregs. Saga íslenska kvennalandsliðsins í handbolta er merkileg en fyrsta landsliðið steig sín fyrstu skref árið 1956, áratugum áður en íslensk kvennalandslið í ýmsum öðrum hópíþróttum hófu þátttöku á alþjóðavettvangi.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.