U20 ára landslið kvenna lagði af stað til Kína í gærkvöldi þar sem liðið leikur á heimsmeistaramótinu. Er þetta í annað sinn sem þessi árgangur tekur þátt í heimsmeistaramóti sem fram fer í Kína og er því stór hluti af hópnum að fara til Kína í annað sinn á ævinni. Íslenska liðið flaug til Parísar í gærkvöldi og þaðan til Beijing í Kína. Í kjölfarið flýgur liðið síðan beint til Jinzhong þar sem liðið leikur leiki sína í riðlakeppninni. Íslenska liðið mætir til Kína að morgni mánudags, tveimur sólarhringum fyrir fyrsta leik sinn á HM. Ísland hefur leik á miðvikudaginn í næstu viku en liðið er í riðli með Svartfjallalandi, Tékklandi og Bandaríkjunum. Handkastið mun fylgjast með gangi mála hjá stelpunum á meðan mótinu stendur. Leikir Íslands á HM U20 kvenna: Halldór Stefán Haraldsson er þjálfari liðsins en Sunna Jónsdóttir verður honum til aðstoðar ásamt Jovan Kukobat og Unnar Arnarsson. Markmiðið er að fara áfram - Annað væri furðulegt Leikmannahópur Íslands: Markmenn: Elísabet Millý Elíasardóttir - HK Útileikmenn: Birna María Unnarsdóttir - ÍBV Ásdís Halla Hjarðar - ÍBV Arna Karítas Eiríksdóttir - Valur Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir - Valur Bergrós Ásta Guðmundsdóttir - KA/Þór Dagmar Guðrún Pálsdóttir - Fram Emelía Ósk Aðalsteinsdóttir - Selfoss Guðmunda Auður Guðjónsdóttir - Haukar Guðrún Hekla Traustadóttir - Valur Hulda Hrönn Bragadóttir - Selfoss Inga Fanney Hauksdóttir - HK Sara Lind Fróðadóttir - Valur Sara Rún Gísladóttir - Fram
Miðvikudagur:
03:45 Ísland - Svartfjallalands (11:45 á kínverskum tíma)
Fimmtudagur:
06:00 Ísland - Tékkland (14:00 á kínverskum tíma)
Laugardagur:
03:45 Ísland - Bandaríkin (11:45 á kínverskum tíma)
Sif Hallgrímsdóttir - ÍR
Alexandra Ósk Viktorsdóttir - ÍBV

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.