Tinna Valgerður og Bjarni Ófeigur eiga von á barni
Egill Bjarni Friðjónsson

Tinna Valgerður Gísladóttir leikmaður KA/Þórs í Olís-deildinni og sambýlismaður hennar Bjarni Ófeigur Valdimarsson, eiga von á sínu fyrsta barni.

Parið greindi frá gleðitíðindunum á samfélagsmiðlum sínum um síðustu helgi. Tilkynningin kom á sama tíma og þau fögnuðu útskrift úr lögfræði. Eiga þau von á barninu í byrjun næsta árs.

Þar með er ljóst að Tinna Valgerður sem var næst markahæsti leikmaður KA/Þórs í Olís-deildinni á síðustu leiktíð leikur ekkert með liðinu fyrir áramót og óvíst hvort eða hvenær hún snýr aftur á völlinn eftir áramót.

Fjarvera hennar mun án efa setja mark sitt á komandi tímabil og þarf KA/Þór nú að bregðast við missinum. Nú er ljóst að liðið hefur misst þrjá markahæstu leikmenn liðsins frá síðustu leiktíð en Susanne Pettersen sem var markahæst hjá liðinu á síðustu leiktíð er farin til Ítalíu og Trude Håkonsen sem var þriðja markahæst er farin til Stjörnunnar.

KA/Þór:
Komnar:
Aldís Ásta Heimisdóttir frá Skara (Svíþjóð)
Ingibjörg Hauksdóttir frá Flint Tonsberg (Noregur)
Agatha Kjærbek Djurhuus frá VB (Færeyjar)
Jóhan Rúnadóttir frá Kyndil (Færeyjar)

Farnar:
Bernadett Réka Leiner
Anna Petrovics
Trude Blestrud Håkonsen í Stjörnuna
Unnur Ómarsdóttir
Elsa Björg Guðmundsdóttir í Gróttu
Susanne Pettersen í Handball Leno (Ítalía)

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top