Vaka Líf framlengir í Breiðholtinu
ÍR handbolti

Vaka Líf Kristinsdóttir hefur framlengt samningi sínum við ÍR. Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðla síðu sinni í kvöld.

Vaka Líf skoraði 81 mark í 18 leikjum með ÍR í Olís-deildinni á síðustu leiktíð en í mars varð hún fyrir því óláni að slíta krossband í æfingaleik með ÍR gegn FH, ,,en hún mun koma tvíefld til baka úr meiðslunum," segir í tilkynningunni frá ÍR.

,,Það eru mikil ánægjutíðindi að Vaka Líf framlengi enda uppalinn ÍR-ingur sem mun leika lykilhlutverk í meistaraflokki kvenna næstu árin," segir ennfremur í tilkynningunni frá félaginu.

Vaka var næst markahæsti leikmaður liðsins á síðasta tímabili og það verður erfitt að fylla hennar skarð á næstu leiktíð fyrir Davíð Georgsson nýráðinn þjálfara liðsins en Vaka var lykilmaður bæði varnar og sóknarlega hjá ÍR.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top