Fram kynnir komu Ebbu
Fram

Fram tilkynnti í dag um komu Ebbu Guðríðar Ægisdóttur sem gengur í raðir félagsins frá uppeldisfélagi sínu Haukum.

Ebba Guðríður var samningsbundinn Haukum en fékk samningi sínum rift og gekk í kjölfarið í raðir Fram þar sem móðir hennar, Díana Guðjónsdóttir verður aðstoðarþjálfari kvennaliðs Fram í Olís-deild kvenna ásamt því að stýra Fram 2 í Grill66-deildinni og 3.flokks liði félagsins.

,,Ebba sem er fædd árið 2009 er gríðarlega efnileg og hefur verið fastamaður í unglingalandsliðum Íslands kemur til með að styrkja 3. flokkinn, U-liðið og meistaraflokk hjá okkur. Ebba Gurrý hefur sterka Fram tengingu, dóttir Díönu Guðjónsdóttur sem er nýráðin aðstoðarþjálfari mfl, síðan væri lengi hægt að rekja ættarsöguna og allar þær kjarnakonur sem þar eru og hafa verið stórtækar í handboltasögu bæði Fram og Íslands," segir í tilkynningunni frá Fram þar sem segir ennfremur að félagið sé gríðarlegt spennt að fá Ebbu Gurrý til sín og sjá hana vaxa og dafna í Frambúningnum.

Handkastið greindi frá skiptu Ebbu til Fram fyrir helgi.

Ein sú efnilegasta fylgir móður sinni í Úlfarsárdalinn

Ebba er þriðji leikmaðurinn sem gengur í raðir Fram í sumar en áður hafði félagið fengið Hönnu Guðrúnu Hauksdóttur frá Stjörnunni og Lenu Margréti Valdimarsdóttur frá Skara í Svíþjóð.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top