Selfyssingurinn, Haukur Þrastarson átti frábært tímabil með þýska liðinu Rhein-Neckar Löwen í Bundesligunni og var einn af bestu leikstjórnendum deildarinnar. Haukur var á sínu fyrsta tímabili með RN-Löwen eftir að hafa gengið í raðir félagsins frá Dinamo Bucuresti. Í myndbandinu hér að neðan má sjá allar 196 stoðsendingar sem íslenski landsliðsmaðurinn gaf á tímabilinu. Haukur var stoðsendingahæsti leikmaður þýsku deildarinnar. Myndbandið með öllum 196 stoðsendingunum má sjá hér að neðan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.