Annar skellur U20 stelpnanna í Kína
IHF

Íslensku stelpurnar í U20 ára landsliðinu fengu skell annan daginn í röð á heimsmeistaramótinu sem fram fer í Kína.

Eftir tap gegn Svartfjallalandi í gær með tíu mörkum töpuðu stelpurnar aftur með tíu mörkum í morgun og það gegn Tékklandi.

IHF
Stelpurnar einbeittar fyrir leik.

Lokatölur 33-23 Tékklandi í vil eftir að hafa verið 16-11 yfir í hálfleik en mest náði Tékkland sex marka forskoti í fyrri hálfleik í stöðunni 10-4 og svo aftur í stöðunni 16-10. Ekki náðu stelpurnar að sýna sitt rétta andlit í seinni hálfleiknum þar sem liðinu gekk illa að komast í gegnum varnarmúr Tékkana og þegar það loks tókst og liðið kom sér í gott færi reyndist Buchtova í marki Tékka íslensku stelpunum erfið en hún endaði með 43% markvörslu og var valin maður leiksins.

Á sama tíma og sóknarleikur Íslands gekk brösuglega þá stóð ekki steinn yfir steini í varnarleik Íslands og fengu Tékkar ákjósanleg færi í nánast öllum sóknum sínum í seinni hálfleik en einu skotin sem Sif Hallgrímsdóttir varði í markinu var af sex metrum eftir að Tékkar hafi spilað sig auðveldlega í gegnum vörn Íslands.

Íslenska liðið spilaði bæði 5-1 og 6-0 vörn í seinni hálfleik sem skilaði litlum árangri. Tékkar náðu mest tólf marka forystu í seinni hálfleik undir lok leiks en íslenska liðið skoraði tvö síðustu mörk leiksins og lokatölur eins og fyrr segir 33-23.

IHF
Bergrós Ásta í leiknum í dag.

Valsstelpurnar Arna Karítas Eiríksdóttir og Guðrún Hekla Traustadóttir voru atkvæðamestar í liði Íslands. Arna Karítas skoraði átta mörk og Guðrún Hekla sjö en aðrar minna.

Eftir tapið er ljóst að liðið kemst ekki áfram uppúr riðlinum sem var markmið liðsins fyrir mótið og mun leika í Forsetabikarnum eftir riðlakeppnina en liðið á einn leik eftir í riðlinum þegar liðið mætir Bandaríkjunum sem hafa tapað fyrstu tveimur leikjum sínum afar stórt. Bandaríkin tapaði til að mynda með 29 mörkum gegn Svartfjallalandi í morgun og 23 mörkum gegn Tékklandi í gær.

Leikur Íslands gegn Bandaríkjunum fer fram aðfaranótt laugardags klukkan 03:45.

Markaskorarar Íslands í leiknum í dag: Arna Karítas Eiríksdóttir 8, Guðrún Hekla Traustadóttir 7, Alexandra Ósk Viktorsdóttir 3, Guðmunda Auður Guðjónsdóttir 2, Birna María Unnarsdóttir 1, Emelía Ósk Aðalsteinsdóttir 1, Sif Hallgrímsdóttir 1.

IHF
Alexandra Ósk skorar eitt af þremur mörkum sínum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top