María Leifsdóttir hefur framlengt samningi sínum við ÍR til ársins 2029. Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum í morgun. María sem er uppalinn ÍR-ingur er fædd árið 2004 og er skytta að upplagi. Hún fékk vaxandi hlutverk á síðasta tímabili en hún varð fyrir meiðslum í upphafi tímabils en kom sterk inn í spennandi lið ÍR á miðju tímabili og stimplaði sig vel inn bæði varnar og sóknarlega. ,,Það verður gaman að fylgjast með henni taka næstu skref á komandi tímabilum. Það er gleðiefni fyrir okkur ÍR-inga að María leiki áfram á heimaslóðum," segir í tilkynningunni frá ÍR. María skoraði 17 mörk í 23 leikjum fyrir ÍR á síðustu leiktíð en liðið féll út í 6-liða úrslitum úrslitakeppninnar eftir tap gegn Fram. Þjálfarabreytingar urðu á liði ÍR eftir tímabilið og tók Davíð Georgsson við liðinu ásamt Björgvini Þór Hólmgeirssyni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.