Íslenska U20 ára kvennalandsliðið tapaði sínum öðrum leik í röð á heimsmeistaramótinu í Kína þegar liðið laut í lægra haldi fyrir Tékklandi 33-23. Bæði töp Íslands á mótinu hafa verið með tíu marka mun og þar með er ljóst að liðið á ekki lengur möguleika á sæti í milliriðli keppninnar. Halldór Stefán Haraldsson, þjálfari liðsins var eðlilega vonsvikinn eftir leikinn í dag en Tékkland náði mest tólf marka forystu undir lok leiks. „Þetta er afar svekkjandi niðurstaða. Við mætum betra liði í dag en mér finnst við hins vegar gera ótrúlega vel í leiknum á köflum. Við erum ekkert langt frá þeim í hálfleik þrátt fyrir marga tapaða bolta,“ sagði Halldór í samtali við Handkastið eftir leik. Íslenska liðið hélt ágætlega í við Tékka í fyrri hálfleik en lenti í miklum vandræðum eftir hlé. „Við lendum í gríðarlegum vandræðum sóknarlega í seinni hálfleik og þegar við fáum færi þá klikkuðum við. Við skorum ekki mark í rúmlega tíu mínútur og það er einfaldlega ekki nógu gott. Ofan á það var varnarleikurinn engan veginn nægilega góður.“ Halldór sagði íslenska liðið hafa átt erfitt með að hemja skyttur tékkneska liðsins sem skoruðu ítrekað af löngu færi. „Við erum að reyna að komast út í þessar skyttur sem eru að bomba á markið af 12 til 13 metra færi en við ráðum illa við það. Þá erum við líka að missa alltof mikið í gegnum vörnina, alstaðar." Þrátt fyrir vonbrigðin hrósaði hann leikmönnum sínum fyrir baráttuna. „Liðið má eiga það að allar eru að reyna sitt besta. Munurinn er hins vegar sá að við erum að spila gegn leikmönnum sem eru komnir lengra á sínum ferli. Sumar þeirra eru orðnar atvinnumenn og það er munur á líkamlegum gæðum þegar hægt er að æfa allan daginn.“ Þjálfarinn viðurkenndi að markmið liðsins um að komast upp úr riðlinum hefði ekki náðst. „Fyrsta markmið okkar var að komast upp úr riðlinum og það tókst ekki. Það er ótrúlega svekkjandi. Við vildum vera nær þessum þjóðum en við erum. Nú tekur við næsta verkefni sem er Forsetabikarinn.“ Ísland mætir Bandaríkjunum í lokaleik sínum í riðlakeppninni aðfararnótt laugardags. Halldór varaði við því að vanmeta það lið. „Þær eru sýnd veiði en ekki gefin. Þar eru leikmenn sem koma meðal annars frá Danmörku, Noregi og Svíþjóð og gegna lykilhlutverkum. Við þurfum einfaldlega að bæta okkar leik.“ Halldór sagði sérstaklega svekkjandi hversu mörg mistök hefðu einkennt leik íslenska liðsins í fyrstu tveimur leikjunum. „Auðvitað förum við inn í mótið með væntingar um að geta hangið í þessum liðum. Það sem er mest svekkjandi, fyrir utan varnarleikinn á köflum, er hversu marga tæknifeila við erum að gera. Það gefur andstæðingunum auðveld færi aftur og aftur og gerir verkefnið enn erfiðara.“ Með tapinu er ljóst að Ísland mun leika um sæti í Forsetabikarnum þegar riðlakeppninni lýkur.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.