U16 kvenna leikur í Gautaborg í vikunni
HSÍ

U16 ára kvenna landslið Íslands er mætt til Svíþjóðar þar sem liðið leikur í opna Evrópumótinu sem fram í Gautaborg næstu daga samhliða stærsta handboltamóti í heimi, Partille Cup sem fram fer í Gautaborg á sama tíma. Þar taka fjölmargir íslenskir krakkar þátt á mótinu frá fjölmörgum félögum.

Þjálfarar íslenska landsliðsins eru þau Rakel Dögg Bragadóttir og Einar Jónsson. Fyrsti leikur Íslands fer fram á morgun þegar liðið leikur gegn Króatíu klukkan 8:30 og seinni leikur liðsins á morgun verður gegn Tékkum klukkan 13:30.

Liðið leikur síðan einnig tvo leiki á þriðjudaginn þegar stelpurnar mæta Ungverjalandi og síðan Litháen í lokaleik riðilsins.

Landsliðið er skipað eftirtöldum leikmönnum: 

Anja Gyða Vilhelmsen        Valur
Bjartey Hanna Gísladóttir    Fram
Elma Kolbrún Bjarnadóttir    FH
Emilía Guðný Magnúsdóttir    HK
Freydís Ragna Kristjánsdóttir    HK
Helga Jenný Vigfúsdóttir    HK
Hrefna Dís Valgeirsdóttir    Haukar
Katrín Ásta Jóhannsdóttir    ÍR
Kristín Einarsdóttir        HK
Matthildur Helga Ólafsdóttir    Valur
Sara Sigurvinsdóttir        Valur
Sara Sveinsdóttir        Valur
Soffia Helen Sölvadóttir    Grótta
Tanja Harðardóttir        ÍBV
Tinna Dröfn Hauksdóttir        HK
Þórhildur Káradóttir        Valur

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top