Frá Akureyri til Kýpur
Egill Bjarni Friðjónsson

Ungverski markvörðurinn Bernadett Leiner hefur samið við kýpverska félagið Strovolou eftir eins árs dvöl hjá KA/Þór í Olís-deild kvenna.

Leiner kom til Akureyrar fyrir tímabilið 2025/26 og var markvörður KA/Þórs á nýliðinni leiktíð ásamt Mateu Lonac. Eftir að Matea Lonac fékk þungt höfuðhögg í janúar jókst spilatími Leiner töluvert hjá nýliðum KA/Þórs.

Nú liggur leið hennar til Kýpur þar sem hún mun leika með Strovolou á komandi keppnistímabili.

Bernadett Leiner var með rúmlega 26% markvörslu í marki KA/Þórs á síðustu leiktíð en liðið hefur fengið Ingibjörgu Hauksdóttur til að fylla skarð Ungverjans.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top