Gríðarlega erfiður leikur fyrir hausinn
IHF

Halldór Stefán Haraldsson, þjálfari U20 ára kvennalandsliðs Íslands, var ánægður með frammistöðu sinna stúlkna eftir 31-20 sigur á Gíneu á HM U20 í Kína í morgun.

Íslenska liðið var átta mörkum yfir í hálfleik 15-7 og var Halldór Stefán virkilega ánægður með byrjunina hjá íslenska liðinu.

„Við byrjuðum leikinn gríðarlega vel og spiluðum frábærlega varnarlega. Það hefði getað verið meiri munur á liðunum í hálfleik. Við fórum illa með einhver sex dauðafæri í fyrri hálfleik og töpuðum boltanum alltof oft í hraðaupphlaupum."

,,Í seinni hálfleik missum við aðeins vörnina en skorum á sama tíma meira og munurinn á liðunum helst. Þetta var gríðarlega erfiður leikur fyrir hausinn og frábær sigur hjá stelpunum. Markvarslan í leiknum var flott, það voru nokkur skot í leiknum sem ég hefði viljað sjá varin þegar við verðum of flatar varnarlega en heilt yfir var markvarslan flott."

Ísland og Alsír eru bæði með fjögur stig í milliriðlinum en topplið riðilsins leikur um 17.sætið á mótinu.

,,Leikmennirnir eru allir ferskir og heilir. Við höfum róterað vel á liðinu með það í huga að mótið er langt og við viljum halda sama tempói út allt mótið. Alsír er töluvert betra lið en lið Gíneu sem sem við mættum í dag, ég reikna með hörkuleik á morgun.”

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top