U16 kvennalandsliðið tapaði fyrstu tveimur leikjum sínum í Gautaborg
HSÍ

U16 ára kvennalandslið Íslands hóf í dag keppni á Opna Evrópumótinu í Gautaborg með tveimur leikjum. Íslenska liðið beið lægri hlut í báðum viðureignunum, fyrst gegn Króatíu og síðar gegn Tékklandi.

Í fyrri leik dagsins tapaði Ísland 26-10 fyrir Króatíu. Króatía hafði yfirhöndina snemma leiks, en eftir að staðan var 3-4 Króatíu í vil skoraði liðið tíu síðustu mörk fyrri hálfleiks og fór til leikhlés með örugga 14-3 forystu. Króatar héldu síðan áfram að stjórna leiknum í síðari hálfleik og sigldu öruggum sextán marka sigri í höfn.

Í seinni leik dagsins mætti Ísland liði Tékklands. Þar var leikurinn mun jafnari framan af og staðan í hálfleik var 7-5 Tékklandi í vil. Ísland hélt sér inni í leiknum fram eftir síðari hálfleik og þegar staðan var 9-8 virtist allt geta gerst. Þá tók tékkneska liðið hins vegar öll völd á vellinum og skoraði sjö síðustu mörk leiksins. Lokatölur urðu 17-8.

Leikirnir á Opna Evrópumótinu eru leiknir í tveimur 20 mínútna hálfleikum. Þjálfarar íslenska liðsins eru Rakel Dögg Bragadóttir og Einar Jónsson.

Íslenska liðið heldur keppni áfram á morgun þegar það mætir Ungverjalandi klukkan 10:00 að íslenskum tíma. Síðar um daginn lýkur riðlakeppninni með leik gegn Litháen sem hefst klukkan 15:00.

Markaskorun Ísland gegn Króatíu: Helga Jenný Vigfúsdóttir 2, Sara Sigurvinsdóttir 1, Emilía Guðný Magnúsdóttir 1, Hrefna Dís Valgeirsdóttir 1, Matthildur Helga Ólafsdóttir 1, Sara Sveinsdóttir 1, Tanja Harðardóttir 1, Anja Gyða Vilhelmsen 1, Katrín Ásta Jóhannsdóttir 1.

Markaskorun Íslands gegn Tékklandi: Sara Sveinsdóttir 4, Þórhildur Káradóttir 1, Hrefna Dís Valgeirsdóttir, 1, Tinna Dröfn Hauksdóttir 1, Kristín Einarsdóttir 1.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top