Unnum þennan leik nánast í fyrri hálfleik
IHF

Ísland tryggði sér sæti í undanúrslitum Forsetabikarsins á Heimsmeistaramóti kvenna U20 ára eftir öruggan 33-23-sigur á Alsír í morgun. Ísland leiddi 17-10 í hálfleik og lagði grunninn að sigrinum með öflugum varnarleik.

Halldór Stefán Haraldsson, þjálfari U20 ára stúlkna landsliðsins, var ánægður með frammistöðu sinna leikmanna.

„Þetta var góður sigur og ég er mjög ánægður með stelpurnar. Við unnum þennan leik nánast í fyrri hálfleik þar sem við spiluðum frábæran varnarleik. Þær eru með gríðarlega sterkan línumann sem hefur skorað mörg mörk á mótinu og þær leita mikið til hennar, en við lokuðum nánast alveg á það. Við keyrðum yfir þær, spiluðum ótrúlega vel og vorum með fá mistök í fyrri hálfleik.“

Hann sagði að leikurinn hefði ekki verið jafn sannfærandi eftir hlé.

„Í seinni hálfleik finnst mér eins og gæðin hefðu mátt vera meiri. Við féllum aðeins of aftarlega í vörninni og fengum of mörg skot yfir okkur. Þá voru margar sóknir ekki nægilega góðar. Alsír er töluvert sterkari andstæðingur en Gínea, en niðurstaðan varð sú sama. Það sýnir að frammistaðan hjá okkur var betri í dag.“

Næst bíður Egyptaland í undanúrslitum í Forsetabikarnum.

„Það er ljóst að við mætum Egyptalandi í undanúrslitum og það verður erfiður leikur. Þær eru með hörkulið og það verður gaman að mæta þeim.“

Í hinum undanúrslitaleiknum mætast Króatía og Brasilía.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top