Íslenska kvennalandsliðið skipað leikmönnum 20 ára og yngri mætir Egyptalandi í undanúrslitum Forsetabikarsins á heimsmeistaramótinu sem fram fer í Kína. Leikurinn hefst klukkan 8:15 á morgun að íslenskum tíma. Um er að ræða keppni um 17. sætið á mótinu fyrir þær þjóðir sem ekki komust áfram úr riðlakeppninni. Eftir riðlakeppnina lék Ísland í milliriðli ásamt Bandaríkjunum, Alsír og Gíneu. Þar vann íslenska liðið sannfærandi sigra á bæði Alsír og Gíneu og tryggði sér þar með sæti í undanúrslitum Forsetabikarsins. Sigur gegn Egyptalandi myndi tryggja Íslandi sæti í úrslitaleik keppninnar. Í hinum undanúrslitaleiknum eigast við Brasilía og Króatía. Íslenska liðið hefur þannig náð góðum árangri í keppni Forsetabikarsins eftir tvö slæm töp í fyrstu leikjum sínum á mótinu gegn Svartfjallalandi og Tékklandi. Hægt verður að horfa á leik íslensku stelpnanna gegn Egyptalandi í beinni á YouTube-rás IHF.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.