Íslensku stelpurnar í U16 ára landsliðinu unnu sinn fyrsta leik á mótinu þegar þær lögðu Litháen 18-12 eftir að hafa verið 8-6 yfir í hálfleik. Þetta var fjórði leikur liðsins á mótinu en fyrsti sigurleikurinn og er hann því kærkominn. Sara Sveinsdóttir var markahæst í íslenska liðinu með 4 mörk, Helga Jenný Vigfúsdóttir, Tinna Dröfn Hauksdóttir og Kristín Einarsdóttir skoruðu 3 mörk hver, Hrefna Dís Valgeirsdóttir skoraði 2 mörk og Emiliía Guðný Magnúsdóttir, Anja Gyða Vilhelmsen og Freydís Ragna Kristjánsdóttir skoruði 1 mark hver. Á morgun hefst svo krossspil þar sem spilað verður upp á sæti.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.