Íslands- og deildarmeistarinn Þorvaldur Örn Þorvaldsson hefur samið við pólska úrvalsdeildarfélagið GE Wybrzeże Gdansk og gengur til liðs við félagið í sumar. GE Wybrzeże Gdansk hafnaði í 4. sæti pólsku úrvalsdeildarinnar á nýliðnu tímabili með 48 stig, aðeins einu stigi á eftir liðinu sem endaði í þriðja sæti. Þorvaldur, sem er fæddur árið 2004, er uppalinn hjá Val þar sem hann hefur verið í stóru hlutverki undanfarin tvö tímabil. Hann hefur einnig leikið með yngri landsliðum Íslands. Í samtali við Handkastið segist Þorvaldur hlakka mikið til að takast á við nýtt verkefni. „Það er virkilega spennandi að spila í pólsku deildinni. Hún er náttúrlega mjög sterk og það verður skemmtilegt challenge að spila á því leveli.“ Þorvaldur heimsótti félagið í janúar áður en gengið var frá samningnum og fékk góða mynd af starfseminni. „Ég tók tvær æfingar með liðinu og fékk að kynnast hópnum og þjálfurunum. Það er mjög fagmannlega staðið að öllu þarna úti og meiri umgjörð í kringum hverja æfingu en hér heima. Eins fannst mér strákarnir í liðinu taka vel á móti mér, sem skiptir miklu máli.“ Aðspurður hvort fleiri félög hafi sýnt honum áhuga segir hann svo vera, þó ekkert hafi orðið úr þeim viðræðum. „Já, það voru önnur lið á sjóndeildarhringnum en ekkert sem fór eitthvað langt í viðræður.“ Hann segir stærsta aðdráttaraflið við félagaskiptin hafa verið tækifærið til að spila á hærra stigi. „Það var kannski helst möguleikinn á að spila á stærra sviði.“ Þorvaldur lítur jafnframt ánægður til baka á síðasta tímabil með Val, þar sem liðið varð bæði Íslands- og deildarmeistari. „Tímabilið hjá Val var mjög lærdómsríkt. Ég bætti mig á ýmsum sviðum og það var gífurlega gott að fá Robba í þjálfarateymið með alla sína reynslu sem línumaður. Það var mjög svekkjandi tapið á móti Haukum í bikarnum. Ég gat ekki spilað sókn í þeim leik vegna meiðsla og þess vegna var það extra sárt," sagði Þorvaldur en Valur tapaði í vítakastkeppni í 16-liða úrslitum Powerade-bikarsins gegn Haukum sem urðu síðar bikarmeistarar. ,,En svo er ekki hægt að biðja um betri endi á tímabilinu. Að kveðja félagið með titli er náttúrlega draumur.“ Þrátt fyrir ungan aldur hefur atvinnumennska verið markmið hjá Þorvaldi um nokkurt skeið. „Ég byrjaði í handbolta þegar ég var 10–11 ára og fann fljótt að þarna var eitthvað passion. Það má alveg segja að þetta hafi snemma legið fyrir sem möguleiki. Það er kannski búið að vera alvöru draumur síðustu fimm til sex árin.“

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.