Hulda verður áfram í Úlfarsárdalnum
Sævar Jónasson

Gísli Freyr Valdórsson, formaður handknattleiksdeildar Fram staðfesti í samtali við Handkastið að Hulda Dagsdóttir markahæsti leikmaður liðsins á síðustu leiktíð verði áfram í herbúðum Fram og leiki með liðinu í Olís-deild kvenna á komandi tímabili.

Handkastið greindi frá því á dögunum að framtíð Huldu hjá félaginu væri óljós og að hún væri mögulega á leið úr Úlfarsárdalnum.

Er Hulda Dags á leið úr Úlfarsárdalnum?

Samkvæmt heimildum Handkastsins hafði Hulda áhuga á að yfirgefa Fram og var vilji hennar að ganga til liðs við Íslandsmeistara Vals, að því gefnu að hún næði að losna undan samningi sínum við Fram. Unnusti hennar, Bjarni Mark Antonsson, leikur með karlaliði Vals í knattspyrnu.

Heimildir Handkastsins herma hins vegar að Valur hafi ekki verið tilbúið að greiða þá upphæð sem Fram fór fram á fyrir leikmanninn og því varð ekkert af félagaskiptunum. Hulda hefur nú ákveðið að virða samning sinn við Fram sem rennur út næsta sumar og leikur með liðinu á næsta tímabili undir stjórn Haraldar Þorvarðarsonar og Díönu Guðjónsdóttur.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top