Karólína Ósk framlengir við Fjölni
Fjölnir

Hægri hornamaðurinn, Karólína Ósk Arndal Sigurlaugardóttir hefur framlengt samning sinn við Fjölni fyrir komandi tímabil. 

Þar með er ljóst að hún leikur áfram með liðinu í Grill66-deildinni á næstu leiktíð.

,,Karólína er öflugur hægri hornamaður og skotmaður sem hefur verið mikilvægur hlekkur í meistaraflokki kvenna. Hún er þekkt fyrir dugnað, samviskusemi og jákvætt hugarfar og er sannkallaður liðsstyrkur sem leggur ávallt sitt af mörkum, bæði innan vallar sem utan," segir í tilkynningunni frá Fjölni.

Magnús Þór Arnarsson, fulltrúi meistaraflokksráðs kvenna, fagnar því að Karólína verði áfram í herbúðum Fjölnis.

„Það er okkur mikið ánægjuefni að Karólína verði áfram í Fjölnislitunum. Hún hefur sýnt mikla vinnusemi og metnað og er mikilvægur hluti af hópnum. Við hlökkum til að fylgjast með henni halda áfram að láta til sín taka og óskum henni innilega til hamingju með nýja samninginn.“

Karólína er sömuleiðis spennt fyrir framhaldinu: „Ég er spennt fyrir komandi tímabili og að halda áfram að vaxa sem leikmaður og sem hluti af liðinu.“

Karólína skoraði 14 mörk í 21 leik fyrir Fjölni í Grill66-deildinni á síðustu leiktíð en liðið endaði í 5.sæti deildarinnar me 14 stig jafn mörg stig og Valur 2.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top