Íslenska drengja landsliðið skipað leikmönnum 20 ára og yngri og 18 ára og yngri verða í eldlínunni á Evrópumótum í júlí. EM U20 hefst 8.júlí á meðan Evrópumót U18 ára hefst 29. júlí. HSÍ auglýsti á samfélagsmiðla síðu sinni á dögunum að áhorfendur á Íslandi geta fylgst með öllum leikjum mótanna í beinni útsendingu í gegnum Handball Globe TV. Handball Globe TV er rétthafi útsendinga á Íslandi, Svíþjóð, Noregi, Danmörku og Slóveníu. Áhorfendur í öðrum löndum geta fylgst með leikjunum í gegnum EHF TV. Boðið verður upp á tvo kaupmöguleika fyrir bæði mótin: Stakur leikur (Pay-per-view): 8 evrur. Innifalið er aðgangur að endurspilun leiksins. All Access: 30 evrur. Veitir aðgang að öllum leikjum viðkomandi móts ásamt endurspilunum út árið 2026. Leikir Íslands á EM U20: Fimmtudagur: Útsendingar: Athugið: All Access aðgangur gildir aðeins fyrir annað mótið í senn og þarf því að kaupa sér aðgang fyrir hvort mót ef fylgjast á með báðum.
Miðvikudagur:
14:00 Ísland - Austurríki
14:00 Ísland - Spánn
Laugardagur:
09:00 Ísland - Lettland

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.