Íslensku stelpurnar í U20 ára landsliðinu fengu skell gegn Afríkumeisturunum í Egyptalandi í undanúrslitum Forsetabikarsins á heimsmeistaramótinu sem fram fer í Jinzhong í Kína í morgun. Egyptaland hafði betur í leiknum 33-26 eftir að hafa verið 17-12 yfir í hálfleik. Íslensku stelpurnar náðu að klóra í bakkann undir lok leiks en mest náði Egyptaland tólf marka foyrstu í leiknum í stöðunni 31-19 en íslenska liðið vann lokakaflann í leiknum 7-2. Egyptaland var alltaf skrefinu á undan í fyrri hálfleik og var með 2-3 marka foyrstu allt þar til undir lok fyrri hálfleiks þar sem kom slæmur kafli hjá íslenska liðinu þar sem mörg góð færi fóru forgörðum. Egyptaland nýtti sér það og fór inn í hálfleikinn með fimm marka forskot. Byrjunin á seinni hálfleiknum var keimlík því hvernig fyrri hálfleikurinn endaði, mörg dauðafæri fóru í súginn og tapaðir boltar reyndust liðinu dýrkeyptir. Liðið fór illa með vítaskotin sín í leiknum og klikkaði öllum fimm vítum sínum í leiknum. Gihad Sayed var stórkostleg í marki Egyptalands og endaði með 54% markvörslu en hún varði alls 19 skot í leiknum, samtals vörðu markmenn Egyptalands 22 skot í leiknum. Á sama tíma var markvarslan nær engin hjá Íslandi en alls vörðu þær Sif Hallgrímsdóttir og Elísabet Millý Elíasardóttir fimm skot í leiknum en þar af varði Elísabet þrjú skot undir lok leiks. Hornamennirnir, Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir og Alexandra Ósk Viktorsdóttir voru markahæstar í liði Íslands með fimm mörk hvor en þær þurftu 20 skot til að skora þessi tíu mörk sem segir ýmislegt um skotnýtingu liðsins úr dauðafærum í leiknum. Arna Karítas Eiríksdóttir skoraði fjögur mörk í leiknum en hún klikkaði þremur vítaskotum. Guðrún Hekla Traustadóttir sem er markahæsti leikmaður liðsins á mótinu fann sig enganveginn í leiknum og skoraði aðeins eitt mark og klikkaði tveimur vítaskotum. Það skýrist á eftir hvort íslenska liðið mætir Brasilíu eða Króatíu í lokaleik sínum á mótinu í leik um 19.sætið. Markaskorar Íslands: Alexandra Ósk Viktorsdóttir 5, Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir 5, Arna Karítas Eiríksdóttir 4, Bergrós Ásta Guðmundsdóttir 3, Ásdís Halla Hjarðar 2, Guðmunda Auður Guðjónsdóttir 2, Birna María Unnarsdóttir 1, Emelía Ósk Aðalsteinsdóttir 1, Hulda Hrönn Bragadóttir 1, Sara Lind Fróðadóttir 1, Guðrún Hekla Traustadóttir 1. Markvarsla: Elísabet Millý Elíasardóttir 4 varin, 15% - Sif Hallgrímsdóttir 1 varin, 4,5%

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.