U18 ára stúlkna landslið Íslands hélt til Póllands aðfaranótt föstudags í æfinga- og keppnisferð þar sem liðið leikur tvo vináttulandsleiki gegn jafnöldrum sínum frá Póllandi. Stelpurnar flugu til Varsjá í nótt og þaðan til Kraká þar sem liðið dvelur á hóteli ásamt A-landsliði Póllands og U18 ára landsliðinu. Stelpurnar leika síðan vináttulandsleikina 5. og 7. júlí áður en haldið er aftur heim til Íslands. ,,Við æfum á resorti sem er sirka tveimur klukkustundum fyrir utan Kraká sem allt er til staðar, hótel, höll og lyftingar aðstaða sem við ætlum að nýta okkur vel og æfum alla dagana tvisvar á dag," sagði Grétar Áki Andersen í samtali við Handkastið beint frá Póllandi. ,,Við byrjuðum að æfa strax um mánaðarmótin maí og júní og æfðum fram að 17.júní og byrjuðum svo aftur núna viku fyrir brottför," sagði Grétar en stelpurnar í U18 unnu sér ekki inn þátttökurétt á stórmóti í sumar. Þetta er því eina verkefni stelpnanna í sumar og það á greinilega að nýta sumarið vel. ,,Við ætlum að reyna nýta þessa leiki í það að byggja ofan á það sem við höfum verið að æfa sem er aggressív 6-0 vörn sem við erum búin að leggja mikið púður í. Síðan ætlum við að halda áfram að byggja ofan á góðan grunn sem var til staðar sóknarlega. Við erum að fara í þessa leiki til að gera vel og ná sem mest úr þeim." Hópurinn sem er út í Póllandi: Markmenn: Útileikmenn:
Erla Rut Viktorsdóttir Haukar
Danijela Sara Björnsdóttir HK
Bryndís Hulda Ómarsdóttir - Stjarnan
Dagný Þorgilsdóttir - FH
Eva Lind Tyrfingsdóttir - Selfoss
Eva Steinsen Jónsdóttir - Valur
Guðrún Ásta Magnúsdóttir - Valur
Guðrún Ólafía Marínósdóttir - FH
Hekla Sóley Halldórsdóttir - HK
Katla Kristín Hrafnkelsdóttir - Fram
Klara Káradóttir - ÍBV
Laufey Helga Óskarsdóttir - Valur
Roksana Jaros - Haukar
Tinna Ósk Gunnarsdóttir - HK
Valgerður Elín Snorradóttir - Stjarnan
Vigdís Arna Hjartardóttir - Stjarnan

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.