Eftir sjö marka tap U20 ára stúlkna landsliðs Íslands gegn Egyptalandi á heimsmeistaramótinu sem fram fer í Kína, í morgun er ljóst að liðið leikur um 19.sætið á mótinu í fyrramálið. Íslensku stelpurnar mæta því brasilíska eftir að brasilísku stelpurnar töpuðu gegn þeim króatísku í morgun. Króatía hafði betur gegn Brasilíu eftir vítakastkeppni en lokatölur eftir venjulegan leiktíma var 26-26. Leikur Íslands og Brasilíu hefst klukkan 8:15 á íslenskum tíma í fyrramálið. Leikurinn verður sýndur í beinni á Youtube rás IHF. Um er að ræða lokaleik stelpnanna á heimsmeistaramótinun en liðið hefur unnið þrjá leiki og tapað þremur hingað til á mótinu. Ljóst er hvaða þjóðir mætast í undanúrslitunum á mótinu. Klukkan 8:00 í fyrramálið mætast Frakkland og Þýskaland og klukkan 10:30 mætast Danmörk og Spánn. Frakkland vann Svartfjallaland fyrr í dag með tíu mörkum 33-23 en Svartfjallaland var með því íslenska í riðli og vann sannfærandi sigur á íslensku stelpunum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.