U16 stelpurnar töpuðu lokaleiknum
HSÍ

Stelpurnar í U16 ára landsliðinu töpuðu lokaleik sínum á Opna Evrópumótinu gegn Slóvakíu fyrr í dag.

Slóvakía hafði betur 18-13 eftir að hafa verið 8-7 yfir í hálfleik. Í stöðunni 13-12 Slóvakíu í vil í seinni hálfleik kom slæmur kafli hjá íslensku stelpunum og reyndust Slóvakarnir sterkari á lokakaflanum og unnu fimm marka sigur 18-13.

Kristín Einarsdóttir var markahæst í liði Íslands með fimm mörk og Tinna Dröfn Hauksdóttir skoraði þrjú mörk.

Íslenska liðið vann einn leik og gerði tvö jafntefli á mótinu en liðið tapaði síðan fjórum leikjum en um var að ræða fyrstu opinberlegu landsleikir stelpnanna.

Markaskorarar Íslands í leiknum í dag: Kristín Einarsdóttir 5, Tinna Dröfn Hauksdóttir 3, Elma Kolbrún Bjarnadóttir 2, Hrefna Dís Valgeirsdóttir 1, Sara Sveinsdóttir 1, Anja Gyða Vilhelmsen 1.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top