Línumaður KA/Þórs hin 25 ára gamla Anna Þyrí Halldórsdóttir mun ekki spila með KA/Þór á næsta keppnistímabili. Þetta staðfesti hún í samtali við Handkastið en KA/Þór hélt sæti sínu í Olís-deildinni eftir að hafa komið upp úr Grill66-deildinni fyrir síðustu leiktíð. Ljóst er að þetta er gríðarleg blóðtaka fyrir norðanliðið enda hefur Anna Þyrí verið að spila stórt hlutverk í liði KA/Þór í mörg ár á báðum endum vallarins. Hún vann m.a alla titla sem í boði var vorið 2021 með KA/Þór undir stjórn Andra Snæs Stefánssonar. Einnig hefur hún spilað í Evrópukeppni fyrir félagið. Á næstu dögum birtist stutt viðtal við Önnu Þyrí þar sem hún útskýrir ákvörðun sína.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.