Eins og kom fram um daginn hér á Handkastinu að þá mun línumaðurinn og varnarjaxlinn eitilharði Anna Þyrí Halldórsdóttir ekki spila með KA/Þór á tímabilinu. Við settum okkur í samband við hana og spurðum hana hvað kæmi til að hún tæki ekki slaginn með KA/Þór í vetur. "Já, ég hef ákveðið að vera ekki með á næsta tímabili en eins og staðan er núna veit ég ekki hvort ég sé hætt í handbolta eða í pásu. Ég ætla ekki að útiloka neitt. Ef ég finn að ég sakna boltans tek ég bara stöðuna á þeim tímapunkti" "Ég hef verið á kafi í þessu síðan ég var unglingur, samhliða skóla og vinnu, og nú fannst mér kominn tími til að sinna öðrum áhugamálum, vinum og fjölskyldu" "Ég er þó alls ekki að aftengja mig handboltanum alveg, þar sem Einar Birgir, sambýlismaður minn, spilar með karlaliði KA. Ég mun því vera mikið í KA-heimilinu að horfa á leiki hjá honum og auðvitað hjá stelpunum" "Ég er þakklát fyrir að mér hafi verið treyst mjög ungri til að spila með meistaraflokki og ég hef fengið að upplifa ótrúlega margt með KA/Þór, þrátt fyrir að vera ekki eldri en ég er. Ég hef eignast margar góðar vinkonur og kynnst frábæru fólki. Hvað framtíðin ber í skauti sér fyrir mig handboltalega séð verður bara að koma í ljós" Handkastið vonar að sjálfsögðu að skórnir séu aðeins komnir tímabundið á hilluna hjá Akureyringnum knáa.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.