FH hefur orðið fyrir mikilli blóðtöku fyrir næsta tímabil
Brynja T.

Kvennalið FH hefur orðið fyrir mikilli blóðtöku fyrir næsta tímabil en þriðji markahæsti leikmaður Grill66-deildarinnar á síðustu leiktíð og lang markahæsti leikmaður FH, Thelma Dögg Einarsdóttir leikur ekki með liðinu á næstu leiktíð.

Thelma Dögg flytur erlendis í sumar en hún tilkynnti þetta á Instagram-síðu sinni fyrir helgi. Þá tilkynnti FH þetta á samfélagsmiðlum sínum nú rétt í þessu.

Thelma Dög skoraði 148 mörk fyrir FH í Grill66-deildinni á síðustu leiktíð en einungis Laufey Helga Óskarsdóttir leikmaður Vals 2 og Katrín Helga Davíðsdóttir leikmaður Aftureldingar skoruðu fleiri mörk en Thelma í deildinni.

FH endaði í 4.sæti deildarinnar og tapaði í undanúrslitum um laust sæti í Olís-deildinni gegn Stjörnunni.

,,Takk fyrir allt, FH. Eftir ótrúlega skemmtileg ár er komið að nýjum kafla. Ég er óendanlega þakklát fyrir allar minningarnar, liðsfélagana, þjálfarana og allt það frábæra fólk sem hefur verið hluti af þessari vegferð. FH mun alltaf eiga sérstakan stað í hjarta mínu. Takk fyrir mig og gangi ykkur sem allra best," skrifaði Thelma Dögg við færslu sína á Instagram á dögunum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top