Júlíus Þórir byrjar tímabilið í banni
Eyjólfur Garðarsson

Júlíus Þórir Stefánsson þjálfari nýliða Gróttu í Olís-deild kvenna stýrir liðinu ekki í fyrsta leik sínum í Olís-deildinni á næstu leiktíð.

Júlíus Þórir var dæmdur í eins leiks bann vegna grófrar ódrengilegrar hegðunar að loknum leik Stjörnunnar og Gróttu í umspili Olís-deildar kvenna í lok apríl. Stjarnan vann leikinn og tryggði sér þar með sæti í Olís-deildinni en um var að ræða oddaleik í einvíginu.

Í kjölfarið var síðan fjölgað um tvö lið í Olís-deild kvenna og þannig vann Grótta sér sæti í Olís-deildinni ásamt Víking.

,,Aganefnd barst skrifleg skýrsla dómara vegna grófrar ódrengilegrar hegðunar Júlíusar Þóris
Stefánssonar, starfsmanns Gróttu að loknum leik Stjörnunnar og Gróttu í Umspili Olís deildar
kvenna þann 29.04.2026. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:10 a). Með tilvísun í 10.
gr. reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að starfsmaðurinn er
úrskurðaður í eins leiks bann. Aganefnd vekur athygli á stighækkandi áhrifum vegna slíkra
brota, skv. 1. mgr. 11. sömu reglugerða"

Grótta heimsækir Fram heim í Úlfarsárdalinn í 1.umferðinni en fyrsti leikur Júlíusar í Olís-deildinni á næstu leiktíð verður á heimavelli þegar Víkingur kemur í heimsókn.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top