Íslenski landsliðsmaðurinn, Bjarki Már Elísson var í dag kynntur sem nýr leikmaður franska stórliðsins, Paris Saint Germain en hann gengur í raðir félagsins eftir að samningur hans við Veszprém rann út. Í tilkynningunni frá félaginu segir Thierry Omeyer, yfirmaður handknattleiksmála hjá PSG, að félagið sé afar ánægt með að fá Bjarka til liðsins. „Við erum mjög ánægð með að bjóða Bjarka velkominn til Paris Saint-Germain Handball. Koma hans styrkir vinstri hornastöðuna okkar við sérstakar aðstæður eftir meiðsli Mathieu Grébille. Reynsla hans, þekking á handbolta á hæsta stigi og markvissa sóknarnýting hans verða dýrmæt fyrir liðið á komandi tímabili,“ sagði Omeyer. Bjarki Már segist afar spenntur fyrir nýja kaflanum á ferlinum. „Það er mikill heiður að ganga til liðs við Paris Saint-Germain Handball. Þetta er eitt stærsta handknattleiksfélag Evrópu með gríðarlegan metnað. Ég hlakka til að verða hluti af þessu nýja verkefni, kynnast liðsfélögum mínum og leggja mig allan fram til að hjálpa liðinu að ná markmiðum sínum,“ sagði Bjarki Már Elísson.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.