Vorum sammála um að þetta væri besta skrefið fyrir mig

Hinn 21 árs gamli Arnþór Sævarsson gerði á dögunum lánssamning frá Fram yfir í Gróttu.

Hann byrjaði á því að framlengja samning sinn við Fram í júní síðastliðnum en svo stuttu seinna var gengið frá lánssamningi hans úr Úlfarsárdalnum vestur á Seltjarnarnes.

Arnþór sem fæddur er árið 2005 ólst upp hjá Þrótti í Laugardalnum en skipti yfir í Fram eftir 5. flokk þar sem hann hefur verið síðan. Hann getur leyst allar stöður fyrir utan og er sterkur varnarlega. Hann var í æfingahóp U-20 ára landsliðsins á sínum tíma.

Handkastið fékk viðbrögð frá Arnþóri vegna félagaskipta hans.

"Ég tók þessa ákvörðun í góðu samráði við Fram og við vorum sammála um að þetta væri besta skrefið fyrir mig á þessum tímapunkti. Ég tel að það sé mikilvægt fyrir minn leik að fá nýjar áskoranir, meira ábyrgðarhlutverk og að prófa mig í nýju umhverfi. Held að það muni hjálpa mér að þróast enn frekar sem leikmaður"

"Ég er ótrúlega þakklátur fyrir tímann minn hjá Fram. Ég hef eignast frábærar minningar, lært helling og fengið tækifæri til að taka þátt í bæði sigrum og erfiðari tímum sem hafa kennt mér mikið"

"Þetta eru þó ekki endalok samstarfsins þar sem ég á enn eitt ár eftir af samningi mínum við Fram þegar lánstímanum lýkur. Nú er fókusinn einfaldlega á að standa mig sem best með Gróttu og halda áfram að bæta mig"

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top