Íslenska U18 landslið kvenna tapaði í dag síðari vináttulandsleik sínum við Pólland en liðið hafði unnið 38-32 sigur á sunnudaginn. Í dag voru það hinsvegar heimastúlkur sem voru alltaf skrefinu á undan en pólska liðið tók strax forystu og skoruðu tvö fyrstu mörkin. Í hálfleik var staðan 13-10 Póllandi í vil. Íslensku stelpurnar misstu þær pólsku aldrei langt frá sér en náðu heldur aldrei yfirhöndinni og endaði leikurinn með 25-24 tapi. Tinna Ósk Gunnarsdóttir var markahæst í íslenska liðinu með 4 mörk, Vigdís Arna Hjartardóttir, Hekla Sóley Halldórsdóttir, Laufey Helga Óskarsdóttir og Valgerður Elín Snorradóttir skoruðu 3 mörk hver. Eva Steinsen Jónsdóttir, Eva Lind Tyrfingsdóttir og Klara Káradóttir skoruðu 2 mörk hver og Roksana Jaros og Dagný Þorgilsdóttir skoruðu eitt mark hvor.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.