Leikstjórnandinn, Harpa Valey Gylfadóttir hefur framlengt samningi sínum á Selfossi og leikur með liðinu í Grill66-deildinni á næstu leiktíð. Harpa gerir samning við Selfoss til ársins 2028. Harpa Valey var undir smásjá félaga í Olís-deildinni í sumar en hefur ákveðið að taka slaginn með Selfossi í Grill66-deildinni en Selfoss féll úr Olís-deildinni á síðustu leiktíð eftir dramatík í lokaumferðinni. Harpa Valey sem er uppalin í Vestmannaeyjum hefur leikið með Selfossi undanfarin þrjú tímabil. Harpa Valey glímdi við meiðsli á síðustu leiktíð og lék aðeins átta leiki með Selfossi og skoraði í þeim leikjum 14 mörk. Harpa lék stórt hlutverk með liðinu tímabilið 2024/2025.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.