Góður sigur í fyrsta leik á EM
HSÍ

Strákarnir í U20 ára landsliði karla hófu leik á EM núna fyrr í dag og var leiknum að ljúka. Fyrstu andstæðingar voru Austurríksmenn. Það voru Austurríksmenn sem hófu leikinn mun betur og komust í 3-6 og 4-9. Ágúst Jóhannsson þjálfari íslenska liðsins tók leikhlé á þeim tímapunkti og endurskipulagði leik íslenska liðsins. Eftir það minnkuðu okkar menn muninn og staðan í hálfleik var 15-16, Austurríkismönnum í vil.

Okkar menn sýndu mikla baráttu í síðari hálfleik og var varnarleikur liðsins og markvarsla virkilega góð. Íslenska liðið komst fljótlega yfir og jók þá forystu jafnt og þétt eftir því sem leið á hálfleikinn. Lokastaða var 32-27 og fyrstu tvö stig strákanna okkar komin í hús.

Atkvæðamestur Íslendinganna var Andri Erlingsson með 7 mörk og þar á eftir var Ágúst Guðmundsson með 6 mörk. Í markinu varði Alexander Ásgrímsson vel og var með 14 skot varin.

Markaskor Íslands:
Andri Erlingsson – 7 mörk
Ágúst Guðmundsson – 6 mörk
Birgir Leó Stefánsson – 5 mörk
Elís Þór Aðalsteinsson – 3 mörk
Harri Halldórsson - 3 mörk
Jens Bragi Bergþórsson – 3 mörk
Stefán Magni Hjartarson – 3 mörk
Antoine Óskar Pantano – 1 mark
Jökull Blöndal Björnsson – 1 mark

Í markinu varði Alexander Ásgrímsson 14 skot og var með 34% hlutfallsmarkvörslu.

Næsti leikur liðsins er strax á morgun þegar liðið mætir Spánverjum kl. 14:00. Spánverjar rúlluðu yfir Letta í morgun, 38-25 og má búast við hörkuleik. Íslenska liðið lék tvisvar sinnum við Spánverja í fyrra. Í fyrri leiknum unnu Spánverjar í úrslitaleik Opna Evrópumótsins í Gautaborg 31-30 en í seinni leiknum unnu okkar menn 32-31 í milliriðli EM í Egyptalandi.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top