Þetta fór heldur brösuglega af stað
EHF

Ísland hóf Evrópumót U20 ára karla í Rúmeníu á sigri í dag þegar liðið lagði Austurríki að velli, 32-27, í fyrsta leik sínum á mótinu. Íslenska liðið sneri taflinu við eftir erfiðan fyrri hálfleik en Austurríkismenn leiddu með einu marki í leikhléi, 16:15, eftir að hafa mest náð fimm marka forskoti.

Í seinni hálfleik steig íslenska liðið upp, vann hálfleikinn 17:-1 og tryggði sér öruggan fimm marka sigur.

Andri Erlingsson var markahæstur hjá Íslandi með sjö mörk og Ágúst Guðmundsson skoraði sex. Þá átti Alexander Ásgrímsson öflugan leik í markinu með 34% markvörslu.

„Þetta fór heldur brösuglega af stað og við vorum ekki nægilega beittir bæði varnar- og sóknarlega, aðallega varnarlega. Við náðum ekki að klukka þá bæði í 5-1 og 6-0 og sóknarlega vorum við að fara illa með upplögð marktækifæri,“ sagði Ágúst Jóhannsson, þjálfari U20 ára landsliðsins, eftir leikinn.

Hann sagði liðið smám saman hafa fundið taktinn eftir erfiða byrjun.

„Eftir 15 mínútna kafla náum við tökum á leiknum og komum okkur hægt og bítandi inn í hann með betri spilamennsku. Það var mögulega einhver skrekkur í mannskapnum í byrjun og við náðum að hlaupa aðeins betur á þá og skila okkur betur til baka. Það var því viðunandi að vera bara einu marki undir í hálfleik miðað við hvernig leikurinn byrjaði.“

Í seinni hálfleik fannst Ágústi liðið sýna sitt rétta andlit. „Sóknarleikurinn var mjög góður af okkar hálfu. Við vinnum seinni hálfleikinn 17-11, vörnin var góð og markvarslan mjög góð. Mér fannst margir leikmenn leggja í púkkið sóknarlega og við vorum að opna þá hvað eftir annað. Við hefðum í rauninni getað unnið þennan leik stærra ef við hefðum klárað færin okkar betur, en heilt yfir var þetta sterkur sigur í fyrsta leik gegn Austurríki. Það er margt sem við getum byggt á og að sama skapi annað sem við getum reynt að lagfæra.“

Þjálfarinn hrósaði sérstaklega varnarleiknum eftir hlé og þeirri liðsheild sem íslenska liðið sýndi. „Ég var ánægður með varnarleikinn og 6-0 vörnin okkar var góð í seinni hálfleiknum, auk markvörslunnar. Að sama skapi fannst mér þetta góð liðsframmistaða. Við erum með breytt lið og strákarnir voru margir að leggja í púkkið. Við erum ánægðir með að byrja mótið á sigri.“

Næsti leikur Íslands verður gegn Spáni og Ágúst gerir sér grein fyrir því að þar bíði afar erfitt verkefni.

„Framundan er mjög erfiður leikur gegn Spánverjum sem voru góðir í dag og við erum byrjaðir að skoða þá og undirbúa þann leik. Það verður strembinn leikur og við þurfum á góðri frammistöðu að halda til að ná í góð úrslit þar.“

Ísland mætir Spáni á morgun klukkan 14:00 á íslenskum tíma í öðrum leik sínum í riðlinum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top