Spánverjar sterkari í dag
IHF)

U20 ára landslið karla mætti Spánverjum í öðrum leik sínum á EM í Rúmeníu rétt í þessu og var leiknum að ljúka. Okkar strákar hófu leikinn betur og komust meðal annars í 7-5. Um það leyti breyttu Spánverjar um varnarleik og fóru framar á völlinn. Það varð þess valdandi að tæknifeilum fjölgaði hjá okkar mönnum og Spánverjar gengu á lagið. Samtals urðu töpuðu boltarnir 10 talsins í fyrri hálfleik og staðan 12-16 fyrir Spán.

Okkar strákar byrjuðu síðari hálfleikinn frábærlega og skoruðu fimm fyrstu mörkin, 17-16 var staðan eftir nokkrar mínútur. Alexander varði frábærlega á þeim kafla og Ágúst Guðmundsson raðaði inn mörkum. Leikurinn var í járnum þar til um 10 mínútur og skiptust liðin á að hafa forystu. Undir lokin voru það síðan Spánverjar sem voru sterkari og unnu fimm marka sigur, 28-33. Íslenska liðið lék frábærlega á köflum með Ágúst Guðmundsson á eldi en hann skoraði 12 mörk úr 13 skotum í dag. Alexander Ásgrímsson var sömuleiðis góður í dag stóran hluta leiksins með 10 skot varin.

Markaskor Íslands:
Ágúst Guðmundsson – 13 mörk
Andri Erlingsson – 2 mörk
Dagur Leó Fannarsson – 2 mörk
Harri Halldórsson – 2 mörk
Ingvar Dagur Gunnarsson – 2 mörk
Jens Bragi Bergþórsson – 2 mörk
Jökull Blöndal Björnsson – 2 mörk
Stefán Magni Hjartarson – 2 mörk
Bessi Teitsson - 1  mark

Í markinu varði Alexander Ásgrímsson 10 skot (29%) og Jens Sigurðarson 1 skot (13%).

Strákarnir fá hvíldardag á morgun en á laugardaginn leika þeir gegn Lettum í lokaleik riðilsins. Sá leikur hefst kl. 09:00. Lettar töpuðu í morgun gegn Austurríkismönnum 38-28. Til að gulltryggja sér sæti í milliriðli verða íslensku strákarnir að vinna leikinn á laugardaginn.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top