Fjögur lið mæta til leiks með nýja þjálfara í Olís-deild kvenna
ÍR

Talsverðar breytingar verða á þjálfurum liðanna í Olís-deild kvenna fyrir keppnistímabilið 2026/27. Alls verða fjórir af tíu þjálfurum deildarinnar á sínu fyrsta tímabili með liðin sín.

Þrír nýliðar verða í deildinni vegna fjölgunar liða úr átta liðum í tíu. Tveir nýliðar, HK og Víkingur, mæta til leiks með nýja þjálfara við stjórnvölinn. Dagur Snær Steingrímsson tók við HK af Hilmari Guðlaugssyni og Eva Hrund Harðardóttir tók við Víkingi af Sebastiani Alexanderssyni.

Davíð Georgsson tekur við ÍR eftir að Grétari Áka Andersen var sagt upp störfum fyrr í sumar. Þá hefur Arnar Daði Arnarsson verið ráðinn þjálfari Stjörnunnar eftir að hafa starfað sem aðstoðarþjálfari liðsins á síðustu leiktíð.

Þjálfarar liðanna í Olís-deild kvenna á tímabilinu 2026/27 eru því:

  • Valur: Anton Rúnarsson
  • Haukar: Stefán Arnarson
  • Fram: Haraldur Þorvarðarson
  • ÍR: Davíð Georgsson (fyrsta tímabil)
  • ÍBV: Magnús Stefánsson
  • Stjarnan: Arnar Daði Arnarsson (fyrsta tímabil)
  • KA/Þór: Jónatan Þór Magnússon
  • HK: Dagur Snær Steingrímsson (fyrsta tímabil)
  • Grótta: Júlíus Þórir Stefánsson
  • Víkingur: Eva Hrund Harðardóttir (fyrsta tímabil)

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top