Fjórir nýir þjálfarar þjálfa allir uppeldisfélögin sín
Sigurður Ástgeirsson

Talsverðar breytingar verða á þjálfurum liðanna í Olís-deild karla fyrir keppnistímabilið 2026/27. Fjórir af tólf þjálfurum deildarinnar verða á sínu fyrsta tímabili með liðin sín.

Mesta athygli vekur að Aron Pálmarsson hefur tekið alfarið við þjálfun FH. Sigursteinn Arndal, sem stýrt hefur FH undanfarin ár, færist yfir í hlutverk aðstoðarþjálfara.

Hrannar Guðmundsson hefur tekið við Aftureldingu eftir að hafa stýrt Stjörnunni undanfarin ár. Við starfi hans hjá Stjörnunni tekur Sverrir Eyjólfsson. Á Selfossi hefur Örn Þrastarson verið ráðinn þjálfari eftir að Carlos Martin Santos sagði upp samningi sínum við félagið og heldur til Svíþjóðar þar sem hann þjálfar á komandi keppnistímabili.

Athygli vekur að allir fjórir nýju þjálfararnir eiga það sameiginlegt að taka við þjálfun hjá sínu uppeldisfélagi.

Þjálfarar liðanna í Olís-deild karla á tímabilinu 2026/27 eru því:

  • FH: Aron Pálmarsson (fyrsta tímabil)
  • Valur: Ágúst Þór Jóhannsson
  • Afturelding: Hrannar Guðmundsson (fyrsta tímabil)
  • Fram: Einar Jónsson
  • Haukar: Gunnar Magnússon
  • ÍBV: Erlingur Birgir Richardsson
  • Stjarnan: Sverrir Eyjólfsson (fyrsta tímabil)
  • HK: Halldór Jóhann Sigfússon
  • KA: Andri Snær Stefánsson
  • Víkingur: Aðalsteinn Reynir Eyjólfsson
  • Þór: Daniel Birkelund
  • Selfoss: Örn Þrastarson (fyrsta tímabil)

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top