Íslenska U20 ára karlalandsliðið tryggði sér sæti í milliriðli Evrópumótsins í Rúmeníu með sigri á Lettlandi í lokaumferð riðlakeppninnar í gær. Nú liggur fyrir að Ísland leikur í milliriðli tvö þar sem mótherjarnir verða Danmörk og Króatía. Króatar tryggðu sér sæti í milliriðlinum eftir dramatískan eins marks sigur á Noregi í lokaumferð riðlakeppninnar. Danmörk og Spánn hefja leik í milliriðlinum með tvö stig hvort, en Ísland og Króatía eru stigalaus. Ísland mætir Króatíu á morgun, mánudag, klukkan 14:00 að íslenskum tíma, áður en liðið leikur gegn Danmörku á þriðjudaginn, einnig klukkan 14:00. Mikið er undir í viðureigninni gegn Króatíu þar sem tvö bestu þriðja sætis liðin í milliriðilinum þremur tryggja sér sæti í átta liða úrslitum Evrópumótsins. Sigur gegn Króötum myndi því styrkja stöðu íslenska liðsins verulega og gæti komið því langleiðina í átta liða úrslitin fyrir lokaleikinn gegn sterku liði Dana. Staðan í milliriðlunum: Milliriðill 1 Milliriðill 2 Milliriðill 3

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.