Gunnar Valur Arason hefur tekið við þjálfun karlaliðs Fjölnis sem leikur í Grill66-deildinni. Hann tekur við starfinu af Guðmundi Rúnari Guðmundssyni sem stýrði liðinu á síðustu leiktíð eftir að hafa áður verið aðstoðarþjálfari Gunnars Steins Jónssonar. Gunnar Valur kemur inn í starfið eftir að hafa stýrt meistaraflokki kvenna hjá Fjölni undanfarin ár og gegnt jafnframt hlutverki aðstoðarþjálfara karla liðsins á síðasta tímabili. „Þetta leggst mjög vel í mig. Ég er spenntur fyrir komandi tímabili,“ sagði Gunnar Valur í samtali við Handkastið. Hann segir ákvörðunina um að taka við karlaliðinu hafa verið nokkuð auðvelda þegar stjórn félagsins hafði samband. „Ég er spenntur fyrir þessu og mér fannst mjög skemmtilegt að vera að aðstoða Gumma. Það var frábært að vera með kvennaliðið en ég var búinn að vera þar mjög lengi og fannst kominn tími á breytingar. Þannig að já, þetta var eiginlega „no-brainer“.“ Aðspurður hvað hafi heillað hann mest við starfið nefnir hann metnaðinn innan leikmannahópsins. „Það er metnaður í strákunum og það heillaði mig fljótt.“ Gunnar Valur ætlar sér ekki að horfa of langt fram í tímann þegar kemur að markmiðum liðsins fyrir næstu leiktíð. „Við tökum einn leik í einu.“ Hann þekkir leikmannahópinn vel eftir síðasta tímabil og telur að liðið hafi sterka innviði, þó viss atriði megi bæta. „Ég held að agi á æfingum og á vellinum sé það helsta sem þarf að bæta. Helsti styrkleiki liðsins er samheldnin.“ Þá segir hann stuðningsmenn geta búist við ákveðnum leikstíl. „Markmiðið er að ná öguðum sóknarleik ásamt því að reyna að halda uppi svipuðu tempói og lið eins og ÍR spilar á.“ Að mati Gunnars verður Grill66-deildin afar sterk á komandi leiktíð. „Ég held að ÍR og Grótta verði í sér flokki. Okkar markmið er að vera nálægt þeim.“ Að lokum sendi hann stuðningsmönnum Fjölnis skýr skilaboð fyrir komandi tímabil. „Við hlökkum til að sjá ykkur öll á vellinum. Ykkar stuðningur gerir mikið fyrir okkar velgengni.“

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.