Danski markvörðurinn Sara Schrøder Winde er nýjasti leikmaður Stjörnunnar en hún kemur til félagsins frá sænska úrvalsdeildarliðinu Skövde. Sara er fædd árið 2005 og er uppalin hjá danska stórveldinu Team Esbjerg en gekk til liðs við Skövde fyrir síðasta tímabil. Að sögn Söru var ákvörðunin um að flytja til Íslands tekin eftir vandlega íhugun og góð samtöl við bæði umboðsmann sinn og forsvarsmenn Stjörnunnar. „Ég var í nánu samtali við umboðsmann minn og íþróttastjórn félagsins og saman komumst við að þeirri niðurstöðu að Stjarnan væri rétti staðurinn fyrir mig til að taka næsta skref á ferlinum og halda áfram að þróast sem leikmaður.“ „Ég ræddi við nokkra sem þekkja vel til deildarinnar og þeir sögðu mér margt gott um bæði gæði handboltans og fagmennsku félaganna. Það gerði mig enn spenntari fyrir því að koma hingað.“ Þótt Sara hafi ekki fylgst mikið með íslensku deildinni segist hún vita að hér sé handboltinn tekinn alvarlega og rík hefð fyrir honum. Henni hlakkar til að fá tækifærið til að bæta sig sem leikmann og hjálpa Stjörnunni. Hún hefur aldrei komið til Íslands en hefur heyrt margt jákvætt um landið. „Ég hef heyrt að Ísland sé einstakt land með stórbrotna náttúru og ég hlakka mikið til að kynnast bæði landinu og menningunni.“ Sara lýsir sér sem markverði sem leggur mikla áherslu á að vera virkur þátttakandi í varnarleik liðsins. „Ég reyni að koma með mikla orku inn í leikinn og vera í stöðugum samskiptum við vörnina. Mér finnst mikilvægt að vinna náið með liðsfélögunum, verja stór skot þegar mest á reynir og vera traustur leikmaður sem liðið getur treyst á.“ Hún verður komin til Íslands á næstu dögum og hlakkar til að hefja undirbúninginn, kynnast leikmönnum, þjálfarateyminu og stuðningsmönnum Stjörnunnar. Markmiðin fyrir fyrsta tímabilið eru skýr. „Ég vil hjálpa Stjörnunni að ná sínum markmiðum og eiga farsælt tímabil. Persónulega vil ég halda áfram að þróast sem markvörður, sýna stöðugleika í leik mínum og leggja mitt af mörkum með mikilvægum vörslum þegar liðið þarf mest á þeim að halda. Ég hlakka til að gefa allt sem ég á fyrir Stjörnuna.“

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.