Stjarnan hefur samið við færeyska línumanninn Tóka Fridriksson til næstu tveggja ára. Tóki er fæddur árið 2005 og kemur til Garðabæjar frá færeyska félaginu KÍF, þar sem hann er uppalinn og hefur leikið allan sinn feril. Tóki segir það hafa verið markmið sitt um nokkurt skeið að spila erlendis og því hafi áhugi Stjörnunnar komið á hárréttum tíma. „Stjarnan hafði samband við mig og spurði hvort ég hefði áhuga á að spila erlendis. Það hefur verið markmið hjá mér í nokkurn tíma að flytja út og mér fannst þetta vera rétta tækifærið og rétta skrefið í minni þróun sem handboltamaður.“ Áður en hann tók endanlega ákvörðun aflaði hann sér upplýsinga hjá fólki sem þekkir vel til íslensks handbolta. „Ég ræddi meðal annars við annan færeyskan leikmann Stjörnunnar sem gaf mér góða mynd af því hvernig það er að búa og spila á Íslandi. Einnig fékk ég góð ráð frá þjálfara KÍF, sem er Íslendingur og þekkir bæði deildina og handboltaumhverfið mjög vel.“ Hann gerir sér grein fyrir að áskorunin verði meiri en hann hefur átt að venjast í Færeyjum. „Ég veit að þetta verður krefjandi skref, því deildin er bæði líkamlega sterkari og gæðin almennt meiri. Ég hlakka hins vegar mikið til að takast á við þá áskorun og halda áfram að þróast sem leikmaður.“ Ísland er heldur ekki alveg ókunnugt Tóka, enda á hann íslenskar rætur. „Amma mín var íslensk og lék sjálf handbolta á Íslandi. Ég hef líka komið hingað áður með U18 landsliði Færeyja þegar við spiluðum vináttuleik. Landið er því ekki alveg ókunnugt fyrir mér.“ Aðspurður um leikstíl sinn segir Tóki styrk sinn felast í líkamlegum leik og vinnusemi fyrir liðið. „Ég myndi lýsa mér sem líkamlega sterkum leikmanni sem nýtir kraft sinn vel. Ég get lagt mitt af mörkum báðum megin vallarins, spila aðallega í miðri vörn og á línunni í sókn. Einn af mínum styrkleikum er að setja góðar hindranir og skapa færi fyrir liðsfélagana. Mér finnst líka gaman að taka ábyrgð í varnarleiknum og hjálpa til við að stýra vörninni.“ Tóki kom til Íslands 26. júlí og segir að undirbúningurinn hafi hafist nánast strax og hann lenti. Markmiðin fyrir fyrsta tímabilið eru skýr, bæði fyrir hann sjálfan og liðið. „Ég vona fyrst og fremst að við eigum gott tímabil sem lið og sýnum stöðugt góðar frammistöður. Persónulega vil ég halda áfram að bæta mig sem handboltamaður, þróa leik minn enn frekar og sýna hvað ég get lagt af mörkum fyrir Stjörnuna.“

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.