Ætlum að selja okkur dýrt í Evrópudeildinni
Baldur Þorgilsson

Íslandsmeistarar Vals voru dregnir í H-riðil í riðlakeppni Evrópudeildar karla fyrir keppnistímabilið 2026/27. Mótherjar liðsins verða ungverska liðið MOL Tatabánya KC, slóvenska liðið RD LL Grosist Slovan og danska liðið Mors-Thy Håndbold.

Riðillinn virðist afar jafn á pappírunum og ætti Valur að eiga raunhæfa möguleika á að berjast um eitt af tveimur efstu sætunum sem gefa áframhaldandi þátttökurétt í keppninni.

Ágúst Jóhannsson, þjálfari Vals, ræddi dráttinn við Handkastið og segir verkefnið bæði krefjandi og spennandi.

„Þetta eru allt saman hörkulið. Það verður gaman að spila við Mors-Thy og bera okkur við þá en við eigum eftir að skoða meira ungverska og slóvenska liðið. Fyrirfram er þetta krefjandi, spennandi en á sama tíma skemmtilegt verkefni.“

Ferðalögin gætu einnig reynst þægileg fyrir Íslandsmeistarana.

„Við lítum auðvitað alltaf líka í ferðalögin og mér sýnist þau geta verið nokkuð þægileg. Nú bíðum við bara eftir því að sjá hvernig leikjaniðurröðunin verður.“

Ágúst segir Evrópuleikina mikilvæga fyrir leikmenn og félagið í heild. „Þetta verður frábær reynsla fyrir strákana og allt félagið.“

Hann vill þó ekki leggja mat á það að svo stöddu hvort raunhæft sé fyrir Val að komast upp úr riðlinum.

„Hvort það sé raunhæft að komast upp úr riðlinum get ég eiginlega ekki svarað á þessari stundu, ég þarf að afla mér betri upplýsinga og sjá hvernig það er en fyrirfram eru þetta mjög öflug lið með mikla sögu en það er klárt mál að við ætlum að selja okkur dýrt þarna líkt og í Olís-deildinni.“

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top