Ætla sér ekki að sækja fleiri leikmenn að svo stöddu
J.L.Long

Örn Þrastarson nýráðinn þjálfari karlaliðs Selfoss gerir ekki ráð fyrir að liðið bæti við sig leikmanni eða leikmönnum áður en Olís-deildin fer af stað.

Þetta staðfesti Örn í samtali við Handkastið.

,,Sverrir Pálsson er hættur og Gunnar Kári fór til baka úr láni til FH. Annað er óbreytt. Svo munu bætast inn í hópinn strákar úr yngri flokka starfinu okkar sem hafa ekki verið í hópnum áður. Við munum ekki sækja neina fleiri að svo stöddu," sagði Örn í samtali við Handkastið er hann var spurður út þær breytingar sem hafa orðið á liðinu í sumar og hvort félagið ætlaði sér að sækja nýja leikmenn.

Aðspurður út það hvort einhverjir fleiri leikmenn myndu yfirgefa liðið sagði Örn.

,,Jónas Karl fer mögulega í flugnám erlendis um áramótin en það er hinsvegar ekki komið á hreint," sagði Örn sem tók við liðinu af Carlos Martin Santos sem var valinn þjálfari ársins hjá Handkastinu á síðustu leiktíð.

Selfoss endaði í 10. sæti deildarinnar á síðustu leiktíð sem nýliðar og það verður spennandi að fylgjast með liðinu takast á við nýtt tímabil undir stjórn nýs þjálfara.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top