Margir lykilmenn Harðar samningslausir
Eyjólfur Garðarsson

Nú styttist óðfluga í að undirbúningur liða fyrir nýtt tímabil fari af stað en staðan á leikmannamálum Harðar frá Ísafirði vekur athygli.

Hörður leikur áfram í Grill66-deild karla eftir að hafa tapað fyrir Stjörnunni í úrslitaeinvígi um laust sæti í Olís-deildinni í vor. Áður hafði liðið slegið Gróttu út í undanúrslitum, 2-0.

Ef marka má leikmannalista á heimasíðu HSÍ eru fjölmargir lykilmenn síðasta tímabils án samnings og félagið hefur á sama tíma ekki kynnt neina nýja leikmenn fyrir komandi leiktíð.

Markahæsti leikmaður liðsins, Endjis Kusners, sem skoraði 141 mark í Grill66-deildinni á síðasta tímabili, er samningslaus. Sama á við um Brasilíumennina Jose Esteves Lopes Neto, Jhonatan Dos Santos og Guilherme Carmignoli De Andrade, en Jose Neto var næstmarkahæstur í liðinu með 132 mörk.

Þá eru hinn efnilegi Axel Vilji Bragason, markvörðurinn Stefán Freyr Jónsson og japönsku leikmennirnir Kei Anegayama og Shuto Takenaka einnig án samnings samkvæmt leikmannaskrá HSÍ. Takenaka skoraði 98 mörk fyrir Hörð á síðustu leiktíð og var einn af mikilvægustu sóknarmönnum liðsins.

Ef þessi staða helst óbreytt gæti Hörður misst stóran hluta þess kjarna sem kom liðinu alla leið í úrslitaeinvígið um sæti í Olís-deildinni.

Handkastið vill hinsvegar benda á að það getur vel verið að einhverjir leikmenn hér að ofan séu búnir að framlengja við Hörð en það eigi eftir að uppfæra heimasíðu Handknattleikssambands Íslands.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top