Elliði nýr fyrirliði Gummersbach
Michael Hundt /AFP

Íslenski landsliðsmaðurinn Elliði Snær Viðarsson hefur verið útnefndur nýr fyrirliði þýska úrvalsdeildarliðsins VfL Gummersbach.

Elliði tekur við fyrirliðabandinu af Julian Köster, sem yfirgaf félagið í sumar og gekk til liðs við THW Kiel eftir að hafa gegnt hlutverkinu í fjögur ár.

Hinn 28 ára gamli Eyjamaður hefur leikið með Gummersbach frá árinu 2020 og var áður varafyrirliði liðsins. Félagið staðfesti ákvörðunina í tilkynningu frá félaginu í dag.

Elliði hefur skorað 428 mörk í 124 leikjum í þýsku úrvalsdeildinni fyrir Gummersbach. Þar að auki á hann að baki 67 leiki og 191 mark í þýsku 2.deildinni.

Með Gummersbach leika þeir Garðar Ingi Sindrason og Teitur Örn Einarsson en Guðjón Valur Sigurðsson stýrir liðinu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top