FH kynnir nýtt þjálfarateymi
FH

Sigurjón Friðbjörn Björnsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna hjá FH. Sigurjón sem var aðstoðarþjálfari liðsins á síðasta tímabili tekur við af Árna Stefáni Guðjónssyni sem lætur af störfum vegna anna á öðrum vígstöðvum.

Handkastið hafði greint frá þessum þjálfarabreytingum fyrr í júlí en Árni Stefán hefur ákveðið að einbeita sér að bæjarpólitíkinni í Hafnarfirði.

Þetta verður fjórða aðalþjálfarastarf Sigurjóns en áður hefur hann þjálfað kvennalið hjá Gróttu, ÍR og Fjölni. Þá þjálfaði Sigurjón U15 og U17 landslið kvenna í samtals fimm ár.

Stefán Harald Berg Petersen verður Sigurjóni til halds og trausts sem nýr aðstoðarþjálfari liðins. Stefán hefur mikla reynslu af þjálfun en síðustu ár hefur hann verð aðstoðarþjálfari mfl. kvenna hjá Fjölni. 

,,Eftir að Árni Stefán óskaði eftir að láta af störfum var okkar fyrsti kostur að ráða Sigurjón Friðbjörn sem aðalþjálfara liðsins. Sigurjón hefur komið með mikinn kraft inn í félagið, bæði inn í yngri flokka starfið og sem aðstoðarþjálfari mfl. kvenna. Við bjóðum svo Stefán velkominn í FH-fjölskylduna og erum við FH-ingar sannfærðir um að þeir muni mynda nýtt öflugt þjálfarateymi,” sagði Ágúst Bjarni Garðarsson formaður handknattleiksdeildar FH.

,,Um leið og við óskum nýju þjálfarateymi velfarnaðar þá þökkum við Árna Stefáni Guðjónssyni kærlega fyrir störf sín fyrir félagið undanfarin ár,” sagði hann ennfremur.

FH fór í umspil um laust sæti í Olís-deildinni á síðasta tímabili en tapaði gegn Stjörnunni 2-0 í undanúrslitaeinvíginu. Liðið leikur því áfram í Grill66-deildinni á næstu leiktíð, nú undir stjórn nýs þjálfarateymis.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top