Færeyskur markvörður á leið til Vals
Baldur Þorgilsson

Samkvæmt heimildum Handkastsins er færeyski markvörðurinn Maria Beder á leið til Íslands þar sem hún mun ganga í raðir Íslands, deildar- og bikarmeistara Vals frá H71.

Maria Beder er fædd árið 2006 og gríðarlega efnilegur markvörður en hún lék með færeyska U20 ára landsliðinu á heimsmeistaramótinu í Kína sem fram fór í síðasta mánuði.

Maria er ætlað að fylla skarð Elísabetar Millý Elíasdóttur sem gekk í raðir nýliða HK í Olís-deildinni í sumar. Landsliðsmarkvörðurinn Hafdís Renötudóttir er fyrir í markvarðahópi Vals, er Mariu ætlað að veita Hafdísi samkeppni um markmannsstöðuna hjá Val í vetur.

Valur varð bæði Íslands, deildar- og bikarmeistari á síðustu leiktíð undir stjórn Antons Rúnarssonar á hans fyrsta tímabili.

Britney Cots gekk í raðir Vals frá ÍBV eftir leiktíðina en Valur hefur misst Theu Imani Sturludóttur, Lovísu Thompson og Lilju Ágústsdóttur í atvinnumennsku og þá gekk Elísabet Millý í raðir HK.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top