Thelma Melsteð Björgvinsdóttir og Inga Dís Jóhannsdóttir hafa báðar samið við Rødovre, sem leikur í dönsku B-deildinni. Þetta staðfesti Thelma í samtali við Handkastið á dögunum. Þær munu því leika saman á næsta tímabili eftir að hafa báðar ákveðið að söðla um og halda til Danmerkur í nám en þær hafa leikið saman með Haukum í Olís-deildinni síðustu ár þar sem Thelma er uppalin en Inga Dís gekk í raðir Hauka frá HK á sínum tíma. Báðar léku þær með yngri landsliðum Íslands en báðar eru þær fæddar árið 2004. Rødovre endaði í 3.sæti dönsku B-deildarinnar á síðustu leiktíð og fór í umspil um laust sæti í dönsku úrvalsdeildinni þar sem liðið beið lægri hlut og leikur því áfram í næst efstu deild þar í landi.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.