Sjáðu glæsilegt sirkusmark Garðars Inga með Gummersbach
Instagram

VfL Gummersbach lék á dögunum einn af fjölmörgum vináttuleikjum sínum fyrir komandi tímabil og vann stórsigur, 44-28.

Íslendingarnir þrír í liði Gummersbach létu allir að sér kveða í leiknum. Ný fyrirliði liðsins, Elliði Snær Viðarsson skoraði þrjú mörk, en Teitur Örn Einarsson og Garðar Ingi Sindrason skoruðu báðir tvö mörk.

Eitt marka Garðars Inga vakti þó sérstaka athygli. Hinn nýi leikmaður Gummersbach skoraði svokallað sirkusmark eftir glæsilega stoðsendingu frá Spánverjanum Alex Dujsebaev.

Dujsebaev er einnig nýliði hjá þýska félaginu en hann gekk til liðs við Gummersbach frá pólska stórliðinu Kielce í sumar.

Hér að neðan má sjá hið glæsilega sirkusmark Garðars Inga.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top