Karl Arnar til Fjölnis

Handknattleiksdeild Fjölnis hefur samið við Karl Arnar Bjarnason um þjálfarastörf hjá félaginu fyrir komandi tímabil.

Karl verður aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna, markmannsþjálfari meistaraflokks og mun jafnframt koma að þjálfun 3. flokks ásamt markmannsþjálfun hjá yngri flokkum félagsins.

"Við erum mjög ánægð með að fá Karl til liðs við okkur. Hann býr yfir mikilli reynslu og þekkingu sem mun nýtast leikmönnum félagsins afar vel. Við bindum miklar vonir við samstarfið og hlökkum til að sjá hann leggja sitt af mörkum í áframhaldandi uppbyggingu handboltastarfsins hjá Fjölni.“ segir meistaraflokksráð kvenna í tilkynningu frá félaginu.

"Ég er mjög spenntur að fá að vinna aftur hjá Fjölni og fá tækifærið til að vinna með Þór, stelpunum í meistaraflokknum, 3. flokki og markmönnum félagsins. Ég hef mikla trú á að við sem lið og félag getum náð góðum árangri og haldið áfram að byggja ofan á það öfluga starf sem unnið er hjá félaginu. Ég tel að reynsla mín, þekking og áhugi geti orðið gott púsl í þennan flotta hóp.“ sagði Karl Arnar jafnframt í sömu tilkynningu frá félaginu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top